Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

CPR

23. febrúar 2010 klukkan 22:22
Ég hef ekki litið hér inn síðan fyrir jól!! við verðum nú aðeins að blása lífi í þessa síðu, enda Amerika baby handan við hornið:) og ekki má gleyma fermingarafmælinu:)
saumó á miðvikudaginn, þá plönum við nú eitthvað smá game! alveg komin tími til:)
skelli inn myndum úr síðasta geimi..good times enda awsome gellur!!:)

mmm jellyskotin:)



allar orðnar rjóðar eftir dansinn:)



bara fór ekki af okkur brosið;)




nú er smá súrefni komið í blessuðu síðuna;) hún er alveg að tapa fyrir stóra feita facebook;)

einn laufléttur:)

20. nóvember 2009 klukkan 22:09

Woman helping hubby set up computer, 4 a password, hubby types PENIS-wife falls off chair laughing when the computer replied PASSWORD REJECTED,NOT LONG ENOUGH!;)

Smá fréttir af mér

02. nóvember 2009 klukkan 21:53

Ég skal núna segja hvað er að frétta af mér.........

Ég er búin að vera einstæð í 2 vikur og hef haft nóg að gera ótrúlegt hvað það fer mikill tími í að ala upp börnin,þvo heimilið og þvottin,elda mat,versla inn og allt sem því fylgir ;) En annars geri ég voðalega lítið annað .............. Embarassed

væri alveg til í að hafa e-h áhugamál eins og tildæmis að drulla mér í ræktina (man þegar það var áhugamál hjá mér,yndislegur tími maður er miklu ferskari og tilbúin að takast á við daginn)
 
ég að vinna í lífstíl og Margrét ógeðslega dugleg í ræktinni og grenntist alveg svakalega........djöfull vorum við sætar þá ahahhahhaahahah  ;)  

Jæja svo má ekki gleyma að ég er að verða búin með jólagjafirnar á bara eftir að kaupa eina jólagjöf og svo er ég meira að segja búin að versla 10 litla pakka sem eiga eftir að koma að góðum notum seinna meir ;) ég er farin að bíða eftir því að fara jólaskreyta og skrifa jólakortin..... er bara farin að hlakka til jóla svei mér þá ;) guð hvað það verður kósi hjá okkur 4 á jólunum.............vá hvað það skrítið að hugsa til þess að við erum orðin 4 tímin líður svo svakalega hratt ;)  

En jæja skora á næstu að koma með nokkra punkta,við getum ekki bara látið hana Margréti sjá um bloggið ;)

og verđlaunin fara til.....

25. október 2009 klukkan 13:26
OKKAR!!! fyrir aðra frábæra bloggframistöðu!! ;) við drukknum í verðlaunum ef við pössum okkur ekki :)
jæja best að gera eitthvað smá í því og koma með smá færslu...þó ég hafi svosem ekkert djúsí að segja frá. Skólinn gengur bara vel...get voða lítið sagt hvernig gengur samt fyrren eftir lokaprófin. En haldiði að seinasta prófið sé ekki 11. des!! ahh langt jólafrí:) Ég ætla svo að skella mér í jólagjafaleiðangur um mánaðamótin vopnuð barnabótunum;) það er alltaf svo gaman að versla gjafirnar...svona þegar þú veist hvað þú ætlar að gefa liðinu:) við erum alveg með á hreinu hvað við ætlum að gefa börnunum okkar en allar hinar gjafirnar eru stórt spurningarmerki...:S

Ég er nú aðeins farin að hlakka til jólanna...þó svo að þessi jól verði soldið súr:( en ég ætla auðvitað að vera rosa sterk og passa að Sara mín finni nú ekki mikið fyrir depurðinni...
Það var þannig í fyrra að við keyptum m.a. náttföt handa ömmu, því hún var jú mjög mikið í náttfötum á þessum tíma og svo veikist hún aftur á annan í jólum og þurfti að fara aftur uppá spítala...og kom aldrei heim aftur, þannig það var ömurlegt að koma heim til hennar og sjá allar jólagjafirnar sem hún náði aldrei að njóta.
æ stundum þegar maður fer að velta sér uppúr litlu hlutunum...eins og þetta, að geta ekki notað jólagjafirnar...En maður verður bara að gera sitt besta.

En í annað...prinsinn er búinn að vera með í maganum í soldið langan tíma...hann rennur út á hverri klst... og rassinn er eftir því:( nær aldrei að jafna sig á milli. Elsku kúturinn, hann hefur fengið svona magapest áður og við fórum með sýni nokkrum sinnum en aldrei fannst neitt að...þannig við sjáum til hvernig fer núna...en hann er alveg hress samt...furðuleg pína í gangi...
en já þetta er svona það sem er í gangi hjá mér þessa dagana:) mjög merkilegt...I know;)
og hvað er að frétta af ykkur? ;)

ţriđjudagur

08. október 2009 klukkan 10:42
smá breyting..saumóinn er á þriðjudaginn!! :) be there or be squere;)

föstudagur

07. október 2009 klukkan 12:35
hvað segiði með saumó á föstudagskvöldið?? :)

saumó:)

05. október 2009 klukkan 12:37
ég veit að það er bara fimmti...en ég er alveg til í saumó fljótlega:) og þar sem hann verður hjá mér þá ræð ég!! múahahahhahaha:)
hvað segiði skvísur...saumó um helgina....eða næstu??:)

finnst ţetta alltaf ágćtt ţegar mér leiđist;) lćri bara á eftir...ehem:/

24. september 2009 klukkan 12:30
Hefur síðasta manneskjan sem sendi þér SMS verið hrifin af þér ?
- ég ætla allavega að vona það:)

Hver er ljótasta manneskja sem þú þekkir ?
- þekki engar ljótar manneskjur:)

Er einhver af vinum þínum með tungulokk eða neflokk?
-Geirný mín var nú með tungulokk lengi vel:)

Hve miklum pening hefurðu eytt í dag ?
- 450 kr í Bauninni:)

Hvað ertu að fara að gera á morgun ?
- fer í skólann og svo í bæjarferð með Bólgunum mínum:)

Hvað finnst þér um hárið á þér núna ?
- Það fer að koma að litun fljótlega...

Saknarðu einhvers ?
- já alveg óskaplega...

Hefurðu einhverntímann stungið af heiman ?
-nei ég varð aldrei svo fræg.....

Hefurðu einhverntíma étið flugu ?
- eeee nei ég held ekki.....

Trúiru á fullkomna ást ?
-já :)

Horfirðu einhverntíman á fréttirnar ?
-Ni....en skoða fréttamiðlana daglega

Hvenær fórstu síðast til útlanda ?
- Fór til New York í mars:) bara geggjað!!!

Ert þú þessi týpa af manneskju sem er alltaf að fara í og úr sambandi ?
- hehe neibb..

Heldurðu að þú gætir endst í 6 mánuði í ástarsambandi ?
-Já mér tækist það bara nokkuð vel:)

Hvernig fékkstu eitt af örunum þínum ?
-Er með ofboðslega flott keisaraör:) ég er reyndar bara nokkuð hænd því...

Hver sendi þér síðast SMS ?
-draumaprinsinn eldri:)

Hvað gerðiru áðan?
- var að koma úr skólanum..

Hver er síðasta manneskjan sem gaf þér knús ?
- ég fékk risaknús frá Erni Óla í morgun:)

Ertu feimin manneskja ?
- Já soldið...

Hefurðu einhverntíma farið upp á þak ?
- hehe ég man nú alltaf eftir einu skipti þegar við Geirný vorum að óþekktast;)

Hefur þer einhvertima verið boðið út að borða (af hinu kyninu)?
-jebb of course:)

Kynnst einhverjum nýjum á þessu ári ?
- Já fullt af yndislegu fólki

Er herbergið sem þú ert í núna, hreint eða allt í drasli ?
- allt hreint og fínt:) er í stofunni..:)

Hefur einhverntímann verið sagt þér ''þetta ert ekki þú, þetta er ég'' ?
- neibb..aldrei verið dömpað:) alltof æðisleg sjáiði til;)

Hvers hlakkarðu mest til ?
- Jólanna....

Hvernig líður þér núna ?
- Bara þokkalega

Hefurðu kysst einhvern sem er með hring í vörinni ?
- ó nei!!!

Geta strákur og stelpa verið vinir, án þess að bera tilfinningar til hvors annars ?
- Já, það er ég nokkuð viss um:)

Ertu hamingjusöm manneskja ?
- Já yfirleitt

Ertu oft kölluð ''Hóra'' ?
- Not to my face allavega

Hvað er það versta sem hefur gerst við símann þinn ?
- eeeee voða lítið, fyrir utan blótsyrðin sem ég læt dynja á núverandi fjarskiptatækinu!!

Hefur þér einhverntíma verið gefin rós ?
- Já meira að segja nokkrar:)

Hvaða lag viltu láta spila í brúðkaupinu þínu ?
- við erum búin að velja lögin:) þau koma bara í ljós;)

Hlærðu oft ?
-Já ég er með mjög einfaldan húmor

Er herbergið þitt einhverntíman hreint ?
-of course:)

and again....bíóferđin

24. september 2009 klukkan 08:23
ok ásta er til í að keyra:)
þá er bara að plana rest....spurning um að fara í Smárabíó...of course:)
og þá er bara hvar skal etið.....kannksi væri best að borða bara í smáranum, fyrst við erum þar....við komum svo snemma að ösin verður ekki byrjuð;) við getum bara valið einhvern góðan þar....:)
hvað finnst ykkur...???

bíóferđin:)

23. september 2009 klukkan 20:25
jæja hver keyrir??? :) spurning um að leggja af stað um hálf sex??? taka okkur góðan tíma í þetta:)
svo bara bíður Ljóti sannleikurinn eftir okkur :)
ahhh það verður bara gott að fara út með Bólgunum mínum:)